Laddi lengir lífið.
Only available in Icelandic.
Það komið að því!
Sýningin Laddi lengir lífið sem sýnd var fyrir fullu húsi í Hörpu í heilt ár, verður nú öllum aðgengileg í stafrænu formi.
Hægt verður að verða sér útum hágæða stafræna skemmtun á mynddisk eða beint í sjónvarpið af VOD leigum landsins.
Þessi einleikur Ladda, þar sem hann sýnir á sér áður óþekktar hliðar ásamt því að grafa upp gamlar grímur. Á sýningunni fá áhorfendur tækifæri til að kynnast manninum á bak við gervin, grínið og grímurnar. Laddi ræðir um sambandið við persónurnar sem hann hefur skapað og að lokum mesta leyndardóminn, það er að segja: hver er Laddi og hvað gerir hann ef hann hefur ekki eitthvert gervi til að fela sig á bak við?
Á bakvið Ladda í sýningunni standa engir aukvisar. Karl Ágúst Úlfsson annaðist skrifin, og Sigurður Sigurjónsson leikstýrði sýningunni. Það má því segja að það sé búið að þrítryggja góða skemmtun.